Inlägg

Visar inlägg från september, 2018

535 Ó, guð vors lands!

Bild
1. Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!  Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!  Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans  þínir herskarar, tímanna safn.  Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár  og þúsund ár dagur, ei meir:  eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,  sem tilbiður guð sinn og deyr.  Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár,  eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,  sem tilbiður guð sinn og deyr.  2. Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram  og fórnum þér brennandi, brennandi sál,  guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns,  og vér kvökum vort helgasta mál.  Vér kvökum og þökkum í þúsund ár,  því þú ert vort einasta skjól.  Vér kvökum og þökkum með titrandi tár,  því þú tilbjóst vort forlagahjól.  Íslands þúsund ár,  Íslands þúsund ár  voru morgunsins húmköldu,  hrynjandi tár,  sem hitna við skínandi sól.