535 Ó, guð vors lands!




1. Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð! 
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn! 
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans 
þínir herskarar, tímanna safn. 
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár 
og þúsund ár dagur, ei meir: 
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, 
sem tilbiður guð sinn og deyr. 
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár, 
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, 
sem tilbiður guð sinn og deyr. 

2. Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram 
og fórnum þér brennandi, brennandi sál, 
guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns, 
og vér kvökum vort helgasta mál. 
Vér kvökum og þökkum í þúsund ár, 
því þú ert vort einasta skjól. 
Vér kvökum og þökkum með titrandi tár, 
því þú tilbjóst vort forlagahjól. 
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár 
voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár, 
sem hitna við skínandi sól.

Kommentarer

Populära inlägg i den här bloggen

500 Nå soli bak om blåe fjell

418 Framåt, framåt går ett tåg